Bloggsvæði Jóhönnu Gunnars
Myndir frá Ástralíu
25.12.2008 05:57:53 / johanna

25.12.2008

Jóladagur

Gleðileg jól til allra vina okkar og ættingja á Íslandi

Hér er búið að vera mikið fjðr undanfarið.
Gestirnir okkar (Ester, Kjartan og börnin 4) hafa verið mjög heppin með veður og eru búin að fara svolítið um og skoða og skemmta sér.
Síðan er auðvitað búið að vera mikið fjör í kringum jólin.
Í gær á aðfangadag kom Ástralski jólasveinninn í heimsókn og gaf öllum gjafir. Hann var ekki mjög sleipur í íslenskunni en reyndi þó sitt besta.
Seinna um daginn fundum við síðan svartan ruslapoka undir einu af trjánum í garðinum og í honum voru gjafir til allra og bréf. Í bréfinu stóð að jólasveinarnir íslensku hefðu verið heillengi að finna út úr því að það vantaði ákveðin íslensk börn í liðið heima. Eftir að þeir komust að því að þau væru í Ástralíu sendu þeir Stúf litla af stað með nokkrar gjafir en þar sem hann hafi ekki fundið neinn stromp á húsinu hafi hann ákveðið að setja pokann undir tréð í garðinum.
Í dag er svo bara verið að slappa af og kæla sig í sundi.

Arnbjörn ætlar að setja inn nokkrar myndir á eftir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 08:16:49 / johanna

14.10.2008 - Þriðjudagur

Eir er komin með heimasíðu

Bara rétt að segja ykkur að hún Eir er komin með heimasíðu. Vonandi verður hún duglegri en ég að blogga. Síðan hennar er á slóðinni
www.blog.central.is/miss-arnbjarnardottir

Mér finnst bara eiginlega ekkert í fréttum af okkur annað en það vanalega svo ég trufla ykkur ekkert með því.
Annars er Jökull bróðir að koma hingað út í næsta mánuði. Hann ætlar að stoppa í nokkra daga hjá okkur. Við erum farin að hlakka til þess að sjá hann.

Við hugsum mjög oft til vina og ættingja á Íslandi þessa dagana vegna ástandsins í fjármálaheiminum.
Verðum svolítið vör við þetta hérna en auðvitað ekki í námunda við það sem þið þurfið að lilfa við.

Gaman væri að fá póst frá einhverjum ykkar svona aðeins til þess að athuga hvernig þið hafið það á þessum seinustu og verstu tímum.

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 08:33:53 / johanna

28.07.2008 - Mánudagur

 

Stolt af stelpunni

Elfa er búin að fara í 2 próf í skólanum til þessa. Annað prófið var í bakteríufræði og fékk Elfa 92 % rétt og hitt prófið var í líffræði og fékk hún 83 % í því. Fjölskyldan er mjög stolt af henni fyrir þennan góða árangur.

Arnbjörn og Eir eru komin aftur frá Sydney. Var víst svolítið kaldara þar en hér. Eir hafði smá tíma til þess að versla og mér sýnist hún alveg hafa misst sig í kaupgleðinni. Fannst mér hún kaupa heldur mikið af vetrarfötum.

Jæja, meistarakeppnin hjá mér er nú yfirstaðin. Var að vonast til þess að spila aðeins betur seinasta daginn en það varð ekki raunin. Raunin varð samt sú að ég lenti í 1.sæti í mínum riðli fyrir nettó höggafjölda (brúttó höggafjöldi mínus forgjöfin). Þetta lítur voða vel út þegar maður veit ekki allar forsendur. Þennan seinasta dag þá ringdi eldi og brennisteini og það var skítkalt þannig að einungis 3 konur af 19 kláruðu að spila í mínum riðli. Svo eru reglurnar þannig að sú sem fær fæstu höggin brúttó getur ekki líka unnið nettó þannig að ég vann það. Frekar leiðinlegur sigur. Gaman að segja ykkur frá þjóðernum þeirra þriggja sem kláruðu hringinn. Ég frá Íslandi, ein frá Skotlandi og sú þriðja frá Englandi.   


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 12:02:26 / johanna

22.07.2008 - Þriðjudagur

   

Sydney - Páfinn farinn - Eir komin 


Páfinn (Benedikt XVI) er búinn að vera í Sydney í heila viku og fór í gær til baka til Rómar. Það er búin að vera alþjóðleg trúar ungdómsvika hér (er haldin á þriggja ára fresti) og Sydney hefur verið pökkuð með pílagrímum allstaðar að úr heiminum.

Marel er að taka þátt í sýningu í Sydney þessa vikuna og slatti af Marel mannskap héðan úr Ástralíu og frá Nýja Sjálandi eru þar af því tilefni. Haddi er fulltrúi frá Marel Íslandi á sýningunni.
Á svona sýningum þarf að vera einhver sem sér um að hella upp á kaffi fyrir hugsanlega eða núverandi viðskiptavini og taka við skilaboðum ef allir Marel menn eru uppteknir. Arnbjörn hringdi í Eir frá Sydney og bað hana að koma og hjálpa þeim með þetta verkefni. Í gærkvöldi flaug Eir svo til Sydney og verður hún þar út vikuna að hjálpa til. Þetta er fín lífsreynsla fyrir hana.

Jæja, þá er loksins búið að leigja húsið okkar heima út aftur. Það er búið að standa autt í næstum 2 mánuði. Leigjendurnir eru þrír ungir menn (2 bræður og einn vinur). Vonandi verða þeir ánægðir í húsinu og vonandi verða þeir góðir leigjendur.

Ég er að taka þátt í meistaramóti í golfklúbbnum mínum núna. Búnir eru þrír dagar af fjórum og er ég að standa mig frekar dapurlega. Enn það er einn dagur eftir til þess að laga stöðuna þó hann dugi ekki til þess að gera neina stóra hluti. Ég veit samt að ég get alveg staðið mig betur. Það eina sem þarf að gerast er að drævin mín séu ekki alltaf að fara svona langt til hægri, ég verði nákvæmari og lengri í járnahöggunum svo að ég lendi ekki í bönkerum eða vatni og losni við stutta spilið. Er nokkuð of mikið að biðja um að þetta sé í lagi ???

Guðlaug frænka mín (dóttir Jökuls bróður) trúlofaði sig um daginn. Sá heppni heitir Haukur. – Til hamingju Guðlaug og Haukur.

Pamela Tinna frænka mín (dóttir Ingu systur) átti afmæli á laugardaginn þann 19.júlí. Hún varð tvítug.  – Til hamingju Pamela Tinna.

Rúna Péturs (konan hans Egils héðan úr Ástralíu) er á Íslandi núna og á hún afmæli á morgun þann 23.júlí. Segi ekki hversu gömul hún verður.  – Til hamingju Rúna.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 01:20:44 / johanna

30.06.2008 - Mánudagur

 

Loksins blogga ég

Jæja, ég veit að það eru komnir 3 mánuðir síðan ég bloggaði síðast en betra er seint en aldrei.

Við erum eins og sumir vita búin að koma til Íslands frá því ég skrifaði síðast. Tilefni ferðarinnar var dapurlegt þar sem Einar Jón bróðir hans Arnbjarnar ákvað að kveðja þennan heim.
Við höfðum ekki mikinn tíma aflögu á meðan við vorum á Íslandi þannig að við hittum nær eingöngu ættingjana.
Bogga mamma hans Arnbjarnar hefur búið upp á 3ju hæð í blokk í Breiðholtinu og var orðið erfitt fyrir hana að ferðast upp og niður stigana og halda sameigninni við.
Arnbjörn notaði tímann heima og hjálpaði mömmu sinni að finna þjónustuíbúð. Um helgina flutti Bogga síðan í nýju íbúðina sína á Dalbrautinni.
Enn á þó eftir að selja hennar íbúð og vonandi gengur það vel.

Húsið okkar heima hefur staðið autt í heilan mánuð frá því að Inga systir flutti út. Það virðist sem leigumarkaðurinn sé álíka stopp og fasteignamarkaðurinn. Vonandi fer nú eitthvað að gerast í  þeim málum.

Elfa er á fullu í skólanum og er bara mjög áhugasöm og dugleg. Skólinn hennar er í ca. 40 km frá okkur og ferðast hún þangað með lestinni eða fær far með einni skólasystur sinni sem býr hérna rétt hjá okkur. Ef hún fer með lestinni þá keyri ég hana og sæki í lestina því það eru um 5 km frá okkur í lestina. Á föstudögum er hún í verklegu þannig að hún fær að meðhöndla viðskiptavini sem panta sér tíma á snyrtistofunni sem er í skólanum. Síðasta föstudag sinnti hún sínum fyrsta viðskiptavini. Sá viðskiptavinur fékk handsnyrtingu. Hér heima er Elfa að æfa sig á okkur, snyrta á okkur neglurnar, nudda hendurnar og naglalakka. Meira að segja Arnbjörn varð fórnarlamb einn daginn og fékk eldrautt naglalakk á neglurnar. Verð að taka það fram til þess að bjarga heiðri Arnbjarnar að naglalakkið var fjarlægt strax á eftir. Skil ekki alveg af hverju hann vildi ekki fara svona í vinnuna.

Eir er enn að vinna í Figure boutique en þó aðallega um helgar. Henni finnst þetta of lítil vinna og er því að spá í að fara að taka einhver fög utanskóla frá Fjölbraut í Garðabæ í ágúst. Hún er búin að hafa samband við skólann og þeir telja ekkert því til fyrirstöðu að hún geti gert þetta. Hún þarf að senda þeim gögn frá skólanum hér til þess að sjá hvað hún getur fengið metið.

Stelpurnar voru báðar búnar að vera lasnar (með kvef og hósta) áður en við fórum til Íslands og Eir var síhóstandi á meðan á Íslandsdvölinni stóð. Á leiðinni út kvörtuðu báðar stelpurnar undan hellum í eyrunum og þegar við komum hingað út aftur virtist sem hellan ætlaði ekki að hverfa. Því var farið til læknis og kom í ljós að þær voru báðar komnar með blússandi eyrnabólgu. Þetta var bara eins og þegar þær voru litlar. Þær hafa ekki fengið svona eyrnabólgu síðan þær voru 4ra ára að mig minnir.  Síðan lagaðist þetta en í síðustu viku var Eir aftur komin með í eyrun og er því á fúkkalyfjum. Í gær byrjaði Elfu svo að klæja í annað eyrað. Ætli hún endi ekki líka með að vera komin með í eyrun aftur.

Ester dóttir hans Arnbjarnar og hennar fjölkylda eru að koma hingað út til okkar um jólin þannig að það verður fjör í bænum. Fjölskyldan : Ester, Kjartan maðurinn hennar, Valgerður dóttir Kjartans (14 ára), Hrannar Darri (9 ára í desember), Arnbjörn Breki (6 ára) og Kamilla (4ra ára) koma hingað þann 12. desember og verða hér í mánuð. Vonandi fá þau betra veður en Halli og Þórhalla fengu um síðustu jól.

Arnbjörn er alveg á kafi í golfinu, meira að segja farinn að kaupa golfblöð. Stundum er hann ekki nógu ánægður með frammistöðuna en svona ykkur að segja þá er hann bara að standa sig ansi vel. Ég hins vegar stend alveg í stað en veit að ég þarf bara að vera þolinmóð og þá gerist eitthvað einn daginn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 03:43:12 / johanna

27.03.2008 - Fimmtudagur

 

Góður gestur og gott frí

Um miðjan mars fengum við góðan gest frá Íslandi. Haddi kom hingað á stefnumótunarfund Marel í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Fundurinn var á Nýja Sjálandi en síðan stoppaði Haddi í Brisbane í nokkra daga. Að mestu var þetta vinna hjá honum en við náðum að troða inn smá golfi sem var auðvitað frábært fyrir okkur. Alltaf gaman að spila með góðu fólki.

Um páskana fórum við fjölskyldan upp á Sunshine coast í smá frí. Vorum 3 nætur á hóteli í  Alexandra Headlands.

Fyrsti dagurinn var frekar rólegur. Stelpurnar fóru á ströndina á meðan við Arnbjörn fórum í göngutúr um svæðið. Hótelið var frábærlega staðsett, það þurfti bara að fara yfir götuna  og þar var vöktuð strönd.

Daginn eftir fórum við stelpurnar á Jet ski og var það alveg æðislega gaman. Ég var ein á sleða en stelpurnar voru saman. Þetta var hálftími af frábærri skemmtun. Ég fór nú frekar varlega en ég held að stelpurnar hafi verið að glannast eitthvað því þær voru alltaf að detta í sjóinn. Seinna sama dag fórum við í Underwaterworlds. Gaman að sjá sjávardýrin, sérstaklega selasýninguna sem var alveg meiriháttar.

Þriðja daginn fórum við Arnbjörn 18 holur í golf á fínan golfvöll þarna í nágrenninu en stelpurnar fóru á ströndina. Eftir golfið skelltum við Arnbjörn okkur svo á ströndina til stelpnanna.

Þar sem veðrið var ekki spennandi fjórða daginn drifum við okkur í keilu og í búðarráp áður en við héldum heimleiðis.

Þetta er algjört æði að fara í svona ferð, það þjappar fjölskyldunni virkilega vel saman.

Held að ég hafi ekki sagt ykkur frá því að stelpurnar eru búnar að vera 1,5 mánuð í vinnu tískuvöruverslun í Cleveland sem er ca. 5 km. í burtu frá okkur. Þetta er ekki full vinna og þær eru bara lausráðnar en þetta er fín reynsla fyrir þær sem fyrsta alvöru vinnan.
Síðan voru þær komnar með aðra vinnu en þegar vel var að gáð var of mikið vesen að halda henni áfram Þetta var nokkurskonar auglýsingavinna, t.d. fóru þær einn daginn niður í miðbæ að útbýta muffins í tilefni árs afmælis dagblaðsins Brisbane times. Síðan áttu þær að fara að auglýsa Baccardi á næstunni. Þá hefðu þær þurft að fara inn á bari og vinna fram eftir nóttu sem okkur foreldrunum leist ekki alveg á. Gallinn var líka  að þetta var allt svo langt í burtu, dýrt að komast fram og til baka og síðan hefðu þær þurft að vera eigin verktakar með öllu því sem því fylgir, fá viðskipta skattanúmer og sjá sjálfar um að borga skattinn og í lífeyrissjóð.  Þannig að þær ákváðu að sleppa þessu starfi í bili að minnsta kosti.

Nú er Arnbjörn trúlega kominn til Danmerkur þar sem hann situr stjórnarfund með stjörnarmönnum Marel Ástralíu. Þetta er svolítið langt ferðalag að fara fram og til baka á einni viku. Og synd að fara ekki heim til Íslands þegar maður er bara hinu megin við hornið.

 Set fljótlega inn myndir frá fríinu inn á myndasíðuna.

  


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 23:05:24 / johanna

12.02.2008 - Þriðjudagur

Rigning og aftur rigning  

Hér rignir enn og aftur. Þetta fer ekki að verða neitt sniðugt nema ef maður hugsar um vatnsbirgðirnar hérna. Í dag átti ég t.d. að spila golf en það er alveg grenjandi rigning úti þannig að ég ætla að fara í bíó með vinkounu minni Colleen. 

Annars er allt þokkalegt að frétta af okkur. Stelpurnar eru að leita sér að vinnu og gengur það nú ekkert allt of vel. Útlendingar með enga reynslu er ekki það sem verið er að sækjast eftir á vinnumarkaðnum hérna. En það þýðir ekki að gefast upp strax.  

Um helgina var ég í stelpu helgarferð með 3 vinkonum úr golfinu (Colleen, Cathy og Kerry). Við fórum niður á Gold Coast að fylgjast með kvenna golfmóti þar. Spiluðum líka 1 golfhring sjálfar (ekki þó á mótinu – erum ekki nógu góðar í það;). Auðvitað var líka farið út að borða og skemmta sér á kvöldin. Maður kom svo glaður en þreyttur heim á sunnuagskvöldið. Við fórum á sama golfmótið í fyrra en þá keyrðum við bara fram og til baka sama daginn en í ár ákváðum við að gera eitthvað meira úr þessu.Við köllum þetta héðan í frá Golfies. Stelpurnar mínar fóru á Gold Coast á Schoolies en við á Golfies.  

Arnbjörn er eins og ég minntist á áður kominn á kaf í golfið og hefur mikið gaman af. Verst að  það viðrar ekki nógu oft til golfspils þessa dagana. 

Eins og þið vitið þá hefur Inga systir leigt húsið okkar. Nú er húsið hennar að verða tilbúið þannig að hún fer úr húsinu okkar í lok apríl. Við ætlum að leigja húsið áfram út í 1 ár og vantar því áreiðanlega leigjendur í það. Ef þið vitið um einhvern hentugan leigjanda þá endilega látið okkur vita.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 09:49:12 / johanna

03.01.2008 - Fimmtudagur

Ástralíuveður – NOT 

En til að byrja með. Til  hamingju með afmælið í gær Freyja og Valgerður. 

Og til þeirra sem mundu eftir okkur um jólin, þá takk fyrir jólakortið og/eða jólakveðjuna. Þeim fer ört fækkandi sem nenna að senda okkur kveðju.

Veðrið hér er búið að vera voðalega skrítið síðan vikuna fyrir jól. Hér er vindur og rigning. Síðan Halli og Þórhalla komu hefur ekki verið einn einasti sólardagur. Þau komu á jóladag og það hefur aldrei viðrað fyrir strandarferð sem er mjög óvenjulegt fyrir svæðið hérna. Annars skelltu Halli og Þórhalla sér til Sydney í gær því þar er aðeins betra veður. Krakkarnir urðu eftir hér í vætunni hjá okkur. Það eina sem er hægt að gera er að horfa á sjónvarpið. Videoleigurnar gera það örugglega gott þessa dagana. Alveg eins og heima á klakanum.

Veðurspáin er reyndar að lofa okkur að veðrið fari að batna um helgina og vonandi er það rétt. Ég er nú bara að kvarta gestanna vegna því okkur finnst allt í lagi að fá einhverja rigningadaga hérna.Gestirnir hafa samt verið duglegir að fara dagsferðir t.d. í Dreamworld, Australian Zoo og North Stradbroke Island þrátt fyrir allt.

Á gamlársdag fóum við öll í keilusalinn og spiluðum keilu og fórum í önnu tæki (sniðugur staður í ekki góðu veðri). Halli sýndi mikla snilldar takta í keilunni og höfðum við hin ekki roð við honum. Um kvöldið fóru gellurnar 3 í partý með vinum stelpnanna en gamalmennin og ungviðið varð eftir heima í rólegheitunum. 

Mér skilt að á Íslandi sé líka búið að rigna ansi mikið og við sleppum ekki við þá rigningu heldur þó að víð séum hérna Því að húsið okkar heima hefur verið að leka og samkvæmt  því sem okkur er sagt þarf að fara að skipta um stóran hluta þaksins, einhvern þakbita og síðan endurnýja að minnsta kosti einn innvegg í húsinu (sjónvarpsholinu) og þá þýðir það trúlega líka hluta eða alveg loftið í öllu holinu (sem við vorum nýbúin að endurnýja áður en við fórum út). Æ, æj, æj. Það er ekki gott að vera svona langt í burtu þegar þarf að græja svona hluti. Sem betur fer á maður góða að þarna heima, allavega ennþá. 

Einhvern næstu daga setjum við myndir inn á netið frá jólum og áramótum hérna Downunder. 

 Við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og vonumst til þess að sjá sem flest ykkar á nýja árinu.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 12:34:15 / johanna

23.12.2007 - Sunnudagur

Fyrsti golfhringurinn 

Arnbjörn fór sinn firsta golfhring í gær á Howeston í Birkdale. Fórum 9 holur á Weston. Hann var með nýja golfsettið sitt sem er jólagjöfin mín til hans. Hann stóð sig miklu betur en ég átti von á. Verð meira að segja að viðurkenna að á einni holunni var hann með færri högg en ég en það hlýtur auðvitað að vera algjör heppni hjá honum. Arnbjörn var mjög hissa sjálfur á hversu langt hann gat slegið með 5 tréinu sínu. 

Stelpurnar komu heim frá Straddy í dag (eyja hérna stutt frá;). Fóru þangað á föstudaginn með Hannah vinkonu sinni og foreldrum hennar. Þær fengu fínt veður í gær en í dag var rigning.  

Ernest (kærastinn hennar Elfu) kom svo í heimsókn í kvöld en þegar hann var að fara kom í ljós að bíllinn sem hann var á var bensínlaus þannig að Arnbjörn fór með honum og Elfu upp á bensínstöð að fá bensín á brúsa. Svo var gosflaska notuð sem trekt til þess að koma bensíninu á bílinn (eins og í gamla daga). Ef maður hefði átt slöngubút hefði verið hægt að taka af einhverjum bílnum hérna heima. Ég fór að segja stelpunum frá hvernig maður hefði bjargað sér í þá gömlu góðu daga þegar maður var blankur eða bara hugsaði ekki nóg fram í tímann. 

Einhverjar nýjar myndir eru á myndasíðunni.

En til ykkar allra sem nennið að lesa síðuna mína : 

Gleðileg jól og frábært komandi ár  


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 23:54:05 / johanna

14.12.2007 - Föstudagur

Senn koma jólin 

Það styttist í jólin, aðeins 10 dagar eftir. Þessi tími er alltaf miklu afslappaðri hérna heldur en heima á Íslandi. Það liggur við að maður gleymi hreinlega að kaupa jólagjafirnar. Annars ætlar fjölskyldan hérna að fara saman í bæinn á morgun og kaupa þær gjafir sem eftir eru og fara síðan út að borða á eftir. Það verður gaman. 

Við erum farin að hlakka til þess að fá gestina að heiman (Halli Guðlaugs frá Marel, Þórhalla konan hans og börnin þeirra Helga Kristín, Ragnheiður og Þröstur). Þau koma á jóladagsmorgun að Áströlskum tíma þannig að þau eyða aðfangadeginum á flugi. Ég held að þau lendi hér ca. 6 um morguninn en þá er klukkan bara 8 að kvöldi 24.des. á Íslandi þannig að þetta verður  allt voðalega skrítið fyrir þau.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 11:45:08 / johanna

20.11.2007 - Þriðjudagur

Skólinn búinn  

Jæja, þá er skólinn  búinn hjá stelpunum og við tekur eitthvað sem við vitum ekki enn hvað verður.

Vikan er búin að vera mjög viðburðarrík. Stiklað á stóru þá var útskriftarballið (Formal) hjá þeim á þriðjudaginn. Dagurinn byrjaði hjá hárgreiðslukonunni og síðan var farið heim til vinkonu þeirra Hannah þar sem þær fengu andlitið málað. Síðan var farið í þessa líka flottu síðkjóla. Eir, Elfa, Hannah og Maasi mættu þarna saman og drengirnir sem fylgdu þeim á ballið. Fullt af öðru fólki mætti einnig til þess að sjá þessi glæsilegu ungmenni áður en hvíta glæsibifreiðin (limman) kom og sótti þau til þess að keyra þau í The City Hall þar sem hátíðarhöldin fóru fram. Við foreldrarnir vorum boðin í fordrykk á undan herlegheitunum. Það var mjög gaman að sjá allar vinkonurnar sem voru hver annarri glæsilegri.  Ballið var búið kl. 11 um kvöldið og þá sótti ég þær (vinkonurnar 3, Eir, Elfu og Hannah), kom með þær hingað heim þar sem þær skiptu um kjóla, fóur í aðeins styttri kjóla og síðan keyrði ég þær í eftirpartý heim til annarrar vinkonu. Pabbi Hannah sótti þær svo eftir partýið og komu þær heim rétt fyrir 6 um morguninn. Mér skilst að það hafi verið dansað alla nóttina. 

Á fimmtudeginum var síðan sjálf útskriftarathöfnin í skólanum. Allir fengu sín útskriftarskírteini og voru auðvitað glaðir með það. 

Á laugardaginn byrjaði síðan vika annarrar gleði hjá þeim nýútskrifuðu. Við keyrðum stelpurnar niður á Gold Coast til þess að taka þátt í Schoolies. Þetta er vika þar sem flestir útriftarnemendur úr 12 bekk hér í nágrenninu mæta og dvelja í heila viku án foreldra og skemmta sér. Eir og Elfa gista ásamt Hannah á íbúðarhóteli í  hjarta Surfers Paradise. Auðvitað er maður pínu stressaður en við vitum að þetta er allt mjög vel skipulagt og mikil gæsla á svæðinu. Nú reynir aldeilis á uppeldið. Kunna þær að gæta sín án þess að mamma sé á staðnum til þess að minna þær á og passa þær.  

Kíkiði endilega á myndasíðuna. Arnbjörn er búinn að setja inn nokkrar myndir.


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 01:26:34 / johanna

02.11.2007 - Föstudagur

Fallinn 

Jæja Þá er Arnbjörn fallinn fyrir golfinu. Hann er búinn að fara tvisvar í golfkennslu og þykir þetta bara nokkuð gaman. Hann segir samt að þetta sé mun erfiðara líkamlega heldur en hann hefði haldið. Nú þarf hann bara að æfa sig svo hann geti farið að spila með mér.  

Marel var að flytja í nýja húsnæðið í gær. Þetta verður svaka munur fyrir Arnbjörn, nú eru ca. 10 – 12 km í vinnuna í stað ca. 30 áður. Ég sá húsnæðið tómt og leist bara vel á þetta, þetta er splunkunýtt og er Marel fyrsti leigjandinn. Það verður aðeins lengra fyrir suma í vinnuna en fyrir meirihlutann er þetta styttra. 

Egill og Rúna eru að missa húsið sem þau leigja hérna. Þau eru bara búin að vera í því síðan í janúar. Þetta er heldur ekki góður tími fyrir þau vegna þess að þau eru að fara til Íslands þann 6.des. og koma ekki aftur fyrr en 10.janúar svo þau verða eiginlega að vera búin að finna eitthvað áður en þau fara.  

Nú er mikill spenningur í gangi hjá stelpunum, próf í næstu viku, formal ballið og útskriftin í vikunni þar á eftir og svo er scoolies þann 17.nóvember. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 23:22:21 / johanna

26.09.2007- Miðvikudagur

Noosa – ferð 

 

Stelpurnar eru komnar í vorfrí í 2 vikur. Á laugardagsmorguninn lögðum við að stað norður í land, nánar til tekið til Noosa sem er hér ca. 160 km í norður. Þetta er mikill ferðamannastaður og því mikið um að vera. Vorum í íbúð sem var staðsett ca. 5 m frá vatni þannig að hægt var að sitja á veröndinni og horfa út á vatnið. 

Fyrsta daginn var veðrið ekki sérlega gott, alskýjað og ekki mikill hiti. Fórum því í bæinn að versla smávegis. Seinnipartinn komu svo þrumur og eldingar og rigning eins og hellt væri úr fötu. Ég og stelpurnar leituðum skjóls undir smá þaki en hamagangurinn í rigningunni var svo mikill að það rigndi á okkur undir þakinu. Tókum við þá á það ráð að hlaupa yfir götuna á veitingastað sem var þar. Kannski ekki sniðugt því við vorum votar eftir að hlaupa þess 10 – 15 metra.  

Sunnudagurinn var svipaður nema að það rigndi ekkert. Fórum á útimarkað og þvældumst um. 

Á mánudagsmorgun fórum við snemma á ströndina, frábært veður og yndislegt að vera á ströndinni. Eftir hádegið fórum við í ævintýri. Ekki langt frá Noosa fórum við í klukkutíma ferð á Camel dýrum. Þetta eru há og tignanleg dýr. Ekki var laust við að sumir hafi verið hálfkvíðnir að fara á bak þessum stóru skepnum. Arnbjörn og Elfa fóru saman á Cameldýr sem bar nafnið Sahara og ég og Eir á dýr sem hét Gabi. Ferðin gekk mjög vel og var miklu þægilegra að sitja þessar skepnur en við héldum. Þetta var mikið ævintýri. Fræddumst aðeins um þessar skepnur og komumst að því að í Ástralíu eru 60.000 Cameldýr og flest þeirra eru villt. Meðalaldur þeirra er 45 ára og eru þetta mjög tryggar skepnur. Eins og flestir vita þá eru Cameldýrin upphaflega eyðimerkurdýr og geta því hæglega komist af á vatns í 2 til 3 vikur. Þegar við komum til baka úr ferðinni settumst við út á veröndina á hótelinu. Kom þá í ljós að fjölskylda sem hafði verið með okkur  í Cameldýra ferðinni var í íbúðinni við hliðina á okkur. Spjölluðum smá við pabbann í fjölskyldunni og komumst að því að þau voru frá Nýja Sjálandi.  

Í gær lögðum við svo í hann aftur heim á leið en komum við í strandarbæ sem heitir Mooloolaba. Ég og stelpurnar skelltum okkur á ströndina þar en Arnbjörn fór og heimsótti eitt fyrirtæki þarna í nágrenninu. Töluverður vindur var og því svolítið sandfok á ströndinni. Entumst því ekki lengi á ströndinni og fórum í búðarráp og eyddum meiri peningum. Þegar Arnbjörn var búinn á fundinum og við á leið í bílinn í bílastæðahúsi í bænum þá rákumst við aftur á fólkið frá Nýja Sjálandi. Ja, þetta er ekki stór heimur stundum. Lentum svo í mikilli traffík á leiðinni heim en komumst heim heil og höldnu rúmlega 6 seinnipartinn. 

Set svo nokkrar myndir frá ferðinni inn á myndasíðuna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 01:14:21 / johanna

02.09.2007 - Sunnudagur

Riverfire  

Í gær fórum við Arnbjörn niður í miðbæ Brisbane á Riverfire. Þetta er hátíð tileinkuð Brisbane river. Hátíðarhöldin standa í viku en í gærkvöldi var hápunkturinn. Meiriháttar flugeldasýning og orustuþotur fljúga yfir með eldhnött aftan úr sér.

Við fórum með lestinni frá Cleveland því ómögulegt er að komast á bíl þegar svona mikið er af fólki. 

Öllu sem fer fram á sýningunni er útvarpað beint og það eru stórir hátalar á svæðinu þannig að við heyrðum í útvarpinu allan tímann. Í enda sýningarinnar var talað við flugmann annarrar orustuþotunnar. Hann bað um að fá að koma með smá aukainlegg í dagskrána og var það samþykkt af útvarpsmönnum. Aukainnleggið var að hann bað unnustu sína um að giftast sér og játti hún honum þarna í beinni útsendingu. Gaman af þessu. 

Á svona hátið hér er mikil öryggisgæsla, enginn fær að fara inn á svæðið öðruvísi en það sé skoðað í töskur hjá fólki því ekki má taka með sér áfengi inn á svæðið. Ég sá oftast á milli 10 og 15 lögreglumenn í einu þegar ég leit í krinum mig. Allt virtist fara friðsamlega fram. Við tókum svo lestina heim um 10 leytið um kvöldið. 

Eir fór með vinkonum sínum í bæinn en Elfa ákvað að vera heima. Eir og vinkonurnar voru eitthvað seinar að koma sér af stað þannig að þær sáu flugeldasýninguna út um glugga lestarinnar á leiðinni niður í bæ. 

Arnbjörn er búinn að setja inn nokkrar myndir frá því í gærkvöldi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 05:41:16 / johanna

20.08.2007 - Mánudagur

Loksins rignir  

Hér hefur ekki rignt í langan tíma og allt orðið mjög þurrt. Þegar svona þurrt er er mikil eldhætta hér og ekki hjálpar að í ágúst mánuði er oft svolítið vindasamt þannig að eldurinn getur breiðst mjög hratt út. Þannig að rigning er kærkomin í meira en einum tilgangi. Það byrjaði semsagt að rigna í gær (trúlega 20 – 40 mm) og heldur áfram í dag. Samkvæmt veðurspánni hér á allavega að rigna hér á morgun líka (þó ekki eins mikið;) og vonum við svo sannarlega að sú spá rætist.Ef allt fer að óskum ættu vatnsbólin að hækka eitthvað og regntankar við húsin hjá fólki að fá eitthvað að drekka. 

Halli Kvaran (frá Marel Íslandi) er hérna núna. Ég fór með honum að spila golf á laugardaginn. Við fórum á einn af fínu völlunum á Gold Coast. Ég spilaði hryllilega illa en Halli spilaði hins vegar mjög vel. Golfbíllinn er innifalinn í verðinu þarna því ekki er leyfilegt að spila öðruvísi. Þeir gera þetta trúlega til þess að hringurinn gangi hraðar fyrir sig. 

Talaði við Ingu systur, Bjössa og Davíð í morgun. Inga og Bjössi voru að vinna í golfmóti svaka flotta golfferð til Mexíkó. Þau voru auðvitað alveg í skýjunum með þetta eins og eðlilegt er. Enn og aftur til hamingju með árangurinn. 

Ég spurði Ingu af hverju þau hefðu ekki unnið frekar ferð til Ástralíu og þá sagði hún mér að frænka okkar Elsa Karen dóttir Jónasar Valtýs (Jónas og ég erum systkinabörn)  hefði unnið ferð til Sydney daginn áður. 

Tengdamamma (Bogga) á afmæli í dag (20.ágúst), hún er 80 ára. Óska henni innilega til hamingju með daginn, veit samt að hún les ekki bloggið mitt. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6